SMÁATRIÐI
LITAKORT
LÝSING
Topp 4000 veggefni er þriggja þátta samskeytalaust fjöliðunnarefni. Það samanstendur af glæru epoxy bindiefni og lituðum kvartssandi sem gefur efninu lit. Dæmigerðir notkunarstaðir eru t.d.
búningsklefar/sturtur
eldhús
bakarí
matvælaiðnaður hvers konar þar sem álag er í mikið
Efnaþol: Topp 4000 hefur gott efnaþol gagnvart flestum sýrum, olíum og fitu
Slitstyrkur er góður gagnvart gangandi og þungri umferð
Sérlega auðvelt í þrifum
Topp 4000 er raka og vatnsgufuþétt
Topp 4000 hefur mjög góða viðloðun við vel hreinsað steypt undirlag, tré og gifs
Hörðnunartími við 20°
- Snertiþurrt 12 klst.
- Fullhart 7 dagar.
Undirlagið skal vera hreint og laust við alla fitu. Frekari hreinsun fer fram með demantslípun til að tryggja viðloðun við undirlagið
Sprungur, ójöfnur og viðgerðir ber að framkvæma með viðgerðarefnum þannig að flöturinn sé tilbúinn fyrir gólfefni
Eftirfarandi ber að hafa í huga
- Að hlutfallsraki sé minni en 80% í yfirborði undirlags
- Að lofthiti sé 18° við gólf í góðan tíma fyrir og meðan á lögn stendur
Verklýsing
- Hreint undirlagið er grunnað með epoxy grunni
- Millilag, epoxy bindiefni og fylliefni er borið á flötinn með stálbretti. Lögnin er því næst jöfnuð með bretti.
- Eftir þornun 12-14 klst. er Toppcoat borið á flötinn með rúllu og lögnin mettuð
- Eftir þornun ca 12-24 klst er Vespox tl borið á flotin með rúllu og jafnað í fínhamrað yfirborð
Efnisnotkun pr m2
Grunnur 250 gr
Millilag 600 gr epoxy bindiefni 800 gr. marmarasalli 4 kg kg kvartssandur 03-1,2 mm
Toppcoat 450 gr
Umhverfi
Topp 4000 veggefni er án upplausnarefna og lyktarlítið
Herðirinn (b hluti) er ætandi og þarf því að verja húð og augu við verkið